Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Vatnsskarði eystra. Hálka er á Vopnafjarðarheiði, hálkublettir eru á Oddskarði. Þungfært er á Öxi og á Breiðdalsheiði. Á Vesturlandi er hálka og snjókoma á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku. Hálka er á Fróðárheiði og hálkublettir eru á Vatnaleið. Á Vestfjörðum er beðið með mokstur á Steingrímsfjarðarheiði og um Þröskulda, næsta athugun verður um kl. 10. Ófært er um Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og Klettsháls. Verið er að moka á milli helstu þéttbýlisstaða. Á Suður- og suðausturlandi eru vegir víðast hvar auðir.