„Við höfum fundið fyrir miklum velvilja gagnvart þessu verkefni“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Svavar Pálsson sýslumaður á Norðurlandi eystra, og H…
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Svavar Pálsson sýslumaður á Norðurlandi eystra, og Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar. Mynd/Stjórnarráðið.

Síðastliðið vor var tekin í notkun ný starfsstöð Persónuverndar á Húsavík en formleg opnun hennar fór fram  9. september sl.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, opnuðu starfsstöðina formlega og fluttu ávörp. 

„Persónuvernd er nauðsynleg til að tryggja hagsmuni einstaklingsins í lýðræðissamfélagi. Möguleikar tækninnar mega ekki trompa rétt okkar til friðhelgi einkalífsins. En það eru líka möguleikar tækninnar sem gera okkur kleift að setja niður störf án staðsetningar,“ sagði Áslaug Arna við tilefnið.

Forstjóri Persónuverndar sagðist jafnframt hafa fundið fyrir velvilja á svæðinu.

„Við höfum fundið fyrir miklum velvilja gagnvart þessu verkefni bæði í fjórðungnum og utan hans. Ég bind vonir við að hægt verði að tryggja áframhaldandi fjármögnun verkefnisins, til hagsbóta bæði fyrir Persónuvernd og landsbyggðina, “ sagði Helga.

Uppsetning starfsstöðvarinnar hefur farið fram í góðu samstarfi við embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra en útbúin hefur verið aðstaða fyrir starfsmenn Persónuverndar á aðalskrifstofu embættisins á Húsavík. 

Flutti Svavar Pálsson, sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, ávarp af því tilefni. Í máli Svavars kom fram að þetta samstarf sýni að krefjandi opinber störf, þar sem sérþekkingar og háskólamenntunar er krafist, sé auðveldlega hægt að staðsetja á landsbyggðinni, þegar víðsýni og stafrænar lausnir fari saman. 


Athugasemdir

Nýjast