Veturinn virðist ætla að slá öll met hjá mér. Janúar og febrúar voru betri en í fyrra, sem þá var metár. Ég hef verið í bransanum í um 35 ár og ef fram heldur sem horfir verður veturinn sá stærsti í minni tíð, segir Viðar Garðarsson í Skíðaþjónustunni á Akureyri. Þetta er búinn að vera langur og góður vetur. Skíðavertíðin hófst í byrjun nóvember og hefur ekki stoppað síðan.
Hann segir sífellt færast í aukana að heimamenn renni sér á gönguskíðum en aðkomufólk sé duglegra á svigskíðum.
Akureyringar virðast vera orðnir þreyttir á þessari tíð sem hefur verið upp í fjalli í vetur, mikil blinda en samt aldrei meiri snjór. En ég hamast hins vegar alla daga við að setja bindingar á gönguskíði fyrir bæjarbúa. Gönguskíðin hafa komið sterk inn undanfarið, segir Viðar Garðarsson.
Nánar er rætt við hann í prentútgáfu Vikudags
throstur@vikudagur.is