Vetrarhátíð við Mývatn

Mývatn.
Mývatn.

Vetrarhátíðin við Mývatn hefur skipað sér sess sem einn skemmtilegasti vetrarviðburður Norðurlands þar sem bæði hefðbundnar og óhefðbundnar vetraríþróttir eru stundaðar í stórbrotinni náttúrufegurð Mývatnssveitar. Hátíðin í ár fer fram þann 5.-14. Mars.

Þar á meðal er Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands á hundasleða og „skijoring“, hestamótið Mývatn Open sem fer fram á ísilögðu Mývatni og fyrsta snocross mót vetrarins. Gönguskíðaspor verða lögð víðs vegar um svæðið, skíðalyftan í Kröflu verður opin ef veður leyfir og heimamenn kenna gestum að dorga.

„Hátíðin markar líka þau ánægjulegu tímamót að ferðaþjónustufyrirtæki í Skútustaðahreppi opna aftur eftir vetrar/COVID lokun. Það verða ýmis konar tilboð á gistingu, mat og afþreyingu og dagskráin er hin glæsilegasta. Nú er tilvalið að skella sér í hundasleðaferð eða á snjósleða og láta svo líða úr sér í jarðböðunum,“ segir í tilkynningu. Vegna sóttvarnaráðstafana er áhersla lögð á að njóta náttúrunnar og útiveru.

Gestir eru því hvattir til þess að taka með sér gönguskó og skíði og njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða á sínum forsendum. Nánari upplýsingar um hátíðina og dagskrá má finna á www.vetrarhatid.com


Athugasemdir

Nýjast