Vel heppnað hundasleðamót

Sleðahundaklúbbur Íslands hélt sitt annað Íslandsmeistaramót á Mývatni við Leirhnjúka laugardaginn 24 mars í afar góðu veðri. Keppnin hófst að morgni í þar sem keppt var á hundasleðum og voru 12 keppendur mættir til keppni. Allir luku keppni með prýði, úrslit urðu:
Í keppnisgreininni, 5 km á hundasleða með 3-4 hunda:
* Í fyrsta sæti: Sigurður B. Baldvinsson á tímanum 17 mínútur og 5 sekúndur
* Í öðru sæti: Olga Rannveig Bragadóttir á tímanum 18 múnútur
* Í þriðja sæti: Claire Thuilliez á tímanum 18 mínútur og 20 sekúndur

Í keppnisgreininni, 5 km á hundasleða með 2 hunda:
* Í fyrsta sæti: Guðbjörg Lára Sigurðardóttir á tímanum 26 mínútur og 57 sekúndur
* Í öðru sæti: Þorkell Magnússon á tímanum 48 mínútur og 25 sekúndur

Í keppnisgreininni, 5 km á hundasleða með 2 hunda, ungmennaflokki, urðu úrslit þessi:
* Í fyrsta sæti: Kolbeinn Ísak Hilmarsson á tímanum 20 mínútur og 34 sekúndur
* Í öðru sæti: Þórdís Rún Káradóttir á tímanum 29 mínútur og 25 sekúndur

Eftir hádegi var keppt í Skijöring, 16 keppendur voru mættir til leiks. Keppt var í þrem flokkum, karla-, kvenna- og barnaflokki, sem og í keppninni fyrr um daginn luku allir keppendur keppni. Úrslit urðu þessi:

Í keppnisgreininni, 2 km á gönguskíðum með 1-2 hunda hunda karlaflokki urðu úrslit þessi:
* Í fyrsta sæti: Sigurður B. Baldvinsson á tímanum 8 mínútur og 59 sekúndur
* Í öðru sæti: Logi Pálsson á tímanum 9 mínútur og 41 sekúndur
* Í þriðja sæti: Sæmundur Þór Sigurðsson á tímanum 10 mínútur og 9 sekúndur

Í keppnisgreininni, 2 km á gönguskíðum með 1-2 hunda hunda kvennaflokki urðu úrslit þessi:
* Í fyrsta sæti: Claire Thuilliez á tímanum 8 mínútur og 57 sekúndur
* Í öðru sæti: Olga Rannveig Bragadóttir á tímanum 10 mínútur og 6 sekúndur
* Í þriðja sæti: Edda Pálsdótir á tímanum 11 mínútur og 12 sekúndur

Í keppnisgreininni, 1 km Skijöring barnaflokkur 12-18 ára urðu úrslit þessi:
* Í fyrsta sæti: Iðunn Pálsdóttir á tímanum 6 mínútur og 8 sekúndur
* Í öðru sæti: Andrea Ylfa Benediktsdóttir á tímanum 6 mínútur og 14 sekúndur

Claire Thuilliez hlaut viðurkenningu fyrir besta tíma keppanda í braut í 2 km Skijöring. Sleðahundaklúbbur Íslands var stofnaður 2010. Sleðahundaklúbbur Íslands er klúbbur áhugafólks um fræðslu og kynningu á sleðahundum, sleðahundasporti og tengdum málefnum. Allt starf klúbbsins miðar að því að efla iðkun sleðahundasports á Íslandi. Í klúbbnum eru áhugamenn um sleðahunda víðsvegar að á landinu.

Nýjast