Vegfarendur varaðir við versnandi veðri norðanlands
Fram á kvöldið ágerist éljagangur og snjókoma norðanlands, einkum á svæðinu frá Vatnsskarði og Þverárfjalli í vestri, austur um í Þistilfjörð og á Vopnafjarðarheiði í austri, segir í ábendingu frá veðurfræðingi til vegfarenda á vef Vegagerðarinnar. Hvöss NV-átt og takamarkað skyggni og í því sambandi er sérstaklega talað um Vikurskarð og á veginum um Mývatns- og Möðrudalsöræfi.
Á láglendi verður víðast um að ræða blautan snjó eða krapa og ágætt að hafa í huga að lítið eitt hlýnar í veðri síðar í kvöld og nótt. Á Vestfjörðum og við Húnaflóa og þ.m.t. á Holtavörðuheiði er ekki útlit fyrir éljagang sem heitið getur og vindur verður að auki fremur hægur á þeim slóðum. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á flestum fjallvegum.
Norðvestanlands eru hálkublettir á Öxnadalsheiði og á Víkurskarði. Hálka er á Siglufjarðarvegi og snjóþekja ásamt éljagang á Þverárfjalli. Á Norðausturlandi er hálka, hálkublettir og éljagangur. Snjóþekja er þó á Hólasandi. Á Austurlandi eru hálkublettir á Möðrudalsöræfum og hálka og skafrenningur á Hellisheiði eystri.