Veðrið setur strik í reikninginn

Glerártorg. Mynd/Þröstur Ernir.
Glerártorg. Mynd/Þröstur Ernir.

„Veðrið hefur gert það að verkum að verslunin hefur verið dræm  en við höfum hins vegar fulla trú á því að þetta muni skila sér til baka þegar veðrið fer að skána,” segir Ragnar Sverrisson formaður Kaupmannafélags Akureyrar. Fjórðu helgina í röð stefnir í að ófært verði um nágrannabyggðir Akureyrar og því hefur verið óvenju rólegt að gera hjá kaupmönnum bæjarins miðað við árstíma.

„Þetta þýðir að það verður bara meira að gera þegar nær dregur jólum. Það verður eflaust brjálað að gera í desember. Við grenjum ekkert yfir því þótt vissulega sé þægilegra að hafa þetta jafnara yfir,” segir Ragnar, sem á og rekur fataverslunina JMJ.

Ragnar, sem fagnaði 47 ára starfsafmæli sínu í gær, segist ekki muna eftir öðru eins veðurfari í kringum helgarnar á þessum árstíma í seinni tíð. „Þetta verður bara eins og í gamla daga; meiri hasar á styttri tíma.”

throstur@vikudagur.is

Nýjast