Úttekt á stöðu mansals á Íslandi
Fulltrúar sérfræðinganefndar Evrópusambandsins hafa verið hér á landi undanfarna daga. Tilgangur heimsóknarinnar er að skoða hvað verið er að gera á Íslandi til að koma í veg fyrir mansal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Starfsgreinasambandinu.
Lögreglan, útlendingastofnun, þrjú ráðuneyti, Vinnumálastofnun, Kvennaathvarfið, Mannréttindaskrifstofan, Rauði Krossinn og Starfsgreinasambandið hefur undanfarin tvö ár myndað hóp sem unnið hefur saman gegn mansali.
Á fimmtudag s.l. fundaði hópurinn með erlendu sérfræðingunum þar sem ýmis mál og aðferðir voru bornar undir þá. Í gær föstudag, var svo haldið opið málþing í Iðnó þar sem fjallað var frekar um málið.
„Ljóst er að unnið hefur verið gríðarlega gott starf hér síðustu ár með því að teyma saman fólk úr ólíkum áttum, vinna að fræðsluátaki, eftirliti og styrkingu innviða. Þetta hefur skilað sér í að fleiri mansalsmál hafa komið upp á yfirborðið en það er eins og með mansal og fjölda annarra glæpa, þeir finnast ekki nema leitað sé að þeim. Þó má gera mun betur og hafa síðustu dagar veitt hugmyndir að betra verklagi og skýrari ramma. Skýrsla sérfræðinganefndarinnar um stöðuna á Íslandi er varða þessi mál er væntanleg innan nokkurra vikna og verður kynnt á þessum vettvangi,“ segir á vef starfsgreinasambandssins. /epe