Útlitið á íþróttavöllum bæjarins mun betra í ár en í fyrra

Á þessari mynd sem Jóhann Már Kristinsson tók, sést hvernig KA-svæðið leit út sl. miðvikudag.
Á þessari mynd sem Jóhann Már Kristinsson tók, sést hvernig KA-svæðið leit út sl. miðvikudag.

Íþróttavellir á Akureyri komu mjög illa undan vetri á síðasta ári og vegna kalskemmda var ásigkomulag knattspyrnuvalla og golfvallarins að Jaðri einstaklega slæmt. Fyrir vikið þurftu KA, Þór og GA að leggja í umtalsverðan kostnað við lagfæringar á svæðum sínum. Útlitið í ár er hins vegar mun bjartara en eins og sést á myndunum sem fylgja þessari frétt, sem voru teknar apríl í fyrra og í þessari viku. Félögin leituðu eftir fjárframlagi frá Akureyrarbæ vegna ástands vallanna í fyrra og lagði bærinn félögunum til milljónir króna vegna þeirra aðgerða sem grípa þurfti til við lagfæringar. Sú vinna, sem framkvæmd var í fyrra, virðist ætla að skila sér vel, auk þess sem veðurfarslegar aðstæður hafa verið betri í ár en í fyrra.

 

 

Nýjast