Úthlutun úr Háskólasjóði KEA
Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA og Stefán B. Sigurðsson rektor Háskólans á Akureyri, afhentu í dag styrki úr Háskólasjóði KEA við athöfn sem fram fór á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð. Að þessu sinni voru veittir níu rannsóknarstyrkir en tuttugu umsóknir bárust sjóðnum. Við úthlutun er horft til þess að verkefnin tengist starfsemi skólans. Einnig hlutu þrír nemar viðurkenningu fyrir góðan námsárangur á brautskráningu fyrr um daginn. Þetta er í níunda sinn sem úthlutað er úr Háskólasjóði KEA og var heildarupphæð styrkja 2,5 mkr.
Eftirtalin rannsóknarverkefni fengu styrk úr Háskólasjóði KEA:
- Örveruhemjandi efni úr
sjávarörverumViðskipta- og raunvísindasvið - Arnheiður Eyþórsdóttir Kr. 200.000,
- Notkun sellulósa sundrandi hitakærra baktería í líftækni Viðskipta- og raunvísindasvið, Jóhann Örlygsson, kr. 300.000,
- Vefsíða fyrir fjarráðgjöf í snemmtækri íhlutun dreifbýlisbarna. Hug- og félagsvísindasvið, Kristín
Guðmundsdóttir, kr. 250.000,
- Örverur í undirheimum - tegundasamsetning hellaslíms í Vatnshelli. Viðskipta- og raunvísindasvið, Oddur Vilhelmsson. kr. 200.000,
- Jarðskjálftaspárannsóknir - kynning á niðurstöðum. Viðskipta- og raunvísindasvið, Ragnar Stefánsson, kr. 150.000,
- Hlutverk flugvalla í þróun áfangastaða - mikilvægi millilandaflugs um Akureyrarflugvöll. Viðskipta- og raunvísindasvið,
RMF/Eyrún Jenný Bjarnadóttir, kr. 150.000,
- Rannsókn á byrjendalæsi (BL - rannsóknin). Hug- og félagsvísindasvið, Rúnar Sigþórsson, kr. 300.000,
- Mat á daglegri hreyfingu eldra fólks með hreyfimælinum ActivPAL og stöðluðum
spurningalista. Heilbrigðisvísindasvið, Sólveig Ása Árnadóttir, kr. 400.000,
- Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyr. iHug- og félagsvísindasvið, Þóroddur Bjarnason, kr. 400.000
Eftirtaldir hlutu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur:
Viðskipta- og raunvísindasvið:Björn Líndal Traustason
kr. 50.000,-Heilbrigðisvísindasvið:Sigríður Elín Þórðardóttir kr. 50.000,-
Hug- og félagsvísindasvið:Heiða Björk Pétursdóttir kr. 50.000,-