Útgáfuhóf: Óræð lönd

Laugardaginn 20. ágúst kl. 15 verður haldið útgáfuhóf í Listasafninu á Akureyri í tilefni útgáfu bókar Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, Óræð lönd.

Bókin er gefin út í tengslum við sýningar þeirra Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum, sem sett var upp í Gerðarsafni, og sýninguna Vísitasíur, sem sett var upp í Listasafninu á Akureyri. Fyrir síðarnefndu sýninguna hlutu þau Myndlistarverðlaun ársins 2022. 

Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson kanna misvísandi hegðun innan vistkerfisins sem birtist í einstöku samspili manna, dýra og annarra lífvera. 

Í bókina skrifa Mark Dion, Ross Birrell, Terike Haapoja og Æsa Sigurjónsdóttir um fjölbreytt viðfangsefni Bryndísar og Mark, sem á síðastliðnum 20 árum hafa brotið blað með þverfaglegum listrannsóknarverkefnum er ögra sambandi okkar mannfólksins við umhverfið.


Athugasemdir

Nýjast