Þetta er nú bara bók um allt mögulegt sem mér hefur dottið hug að skrifa um, sambland af hugleiðingum um alvarleg mál til ábyrgðarlauss heilaspuna, segir Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur á Möðruvöllum í Hörgárdal um bókina Úr hugarheimi, sem kom út í vikunni. Þetta er bæði í gamni og alvöru og síðast en ekki síst er þessi bók gefin út í tilefni af sjötugsafmæli mínu í sumar.
Bjarni hefur á starfsferli sínum aðallega stundað rannsóknir á sjúkdómum og þoli plantna en einnig hefur hann fengist við rannsóknir á smádýrum. Kaflar í bókinni eru úr ýmsum áttum, sumt hefur aldrei birst opinberlega áður, annað ekki, sumt prentað en annað einungis flutt munnlega. Talsvert af þessu hefur verið í huga mér í nokkuð langan tíma, ég skrifa gjarnan niður á blað það sem ég er að hugsa um hverju sinni. Já, já, ég kem nokkuð víða við í bókinni.
karleskil@vikudagur.is