Úr hugarheimi Bjarna Guðleifssonar

Bjarni Guðleifsson með bókina góðu. Mynd: Karl Eskil
Bjarni Guðleifsson með bókina góðu. Mynd: Karl Eskil

 „Þetta er nú bara bók um allt mögulegt sem mér hefur dottið hug að skrifa um, sambland af hugleiðingum um alvarleg mál til ábyrgðarlauss heilaspuna,“ segir Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur á Möðruvöllum í Hörgárdal um bókina Úr hugarheimi, sem kom út í vikunni. „Þetta er bæði í gamni og alvöru og síðast en ekki síst er þessi bók gefin út í tilefni af sjötugsafmæli mínu í sumar.

 

Bjarni hefur á starfsferli sínum aðallega stundað rannsóknir á sjúkdómum og þoli plantna en einnig hefur hann fengist við rannsóknir á smádýrum. Kaflar í bókinni eru úr ýmsum áttum, sumt hefur aldrei birst opinberlega áður, annað ekki, sumt prentað en annað einungis flutt munnlega. „Talsvert af þessu hefur verið í huga mér í nokkuð langan tíma, ég skrifa gjarnan niður á blað það sem ég er að hugsa um hverju sinni. Já, já, ég kem nokkuð víða við í bókinni.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast