Af tómri vorkunnsemi en þó með smekk fyrir þeirra húmor bauð veitingamaðurinn þeim að gera aðra tilraun og það var eins og við manninn mælt, þeir hreinlega slógu í gegn og frá þeim tíma hefur verið uppselt á tónleika Hvanndalsbræðra á Græna hattinum. Auk tónlistarinnar verður boðið uppá happadrætti, föndurhorn, leynigest og annað sem gerir hlut tónlistarinnar sem minnstan. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 bæði kvöldin.