Ungmennaráð Menntamálastofnunar stofnað

Fulltrúar Ungmennaráðs Menntamálastofnunar
Fulltrúar Ungmennaráðs Menntamálastofnunar

Stofnað hefur verið ungmennaráð Menntamálastofnunar sem í eru unglingar á aldrinum 14-18 ára, alls staðar að af landinu, og verða þeir stofnuninni innan innan handar með ráðgjöf um málefni og verkefni sem varða börn og ungmenni.

Ungmennin verða m.a. ráðgefandi um framtíðarsýn í þeim málum sem varða þeirra aldursflokk, eins og t.d. útgáfu námsefnis, námsmat, innritun og fl. Einnig verða Þau  verða starfsfólki Menntamálastofnunar innan handar í einstökum verkefnum, ef tími og aðstæður ráðgjafa leyfa, sitja fundi, málþing eða ráðstefnur á vegum Menntamálastofnunar, ef þurfa þykir, og halda erindi á ráðstefnum, skrifa greinar í blöð og funda með ráðamönnum, svo nokkuð sé nefnt..

Alls eru 22 ungmenni í ráðinu, 12 stúlkur og 10 strákar. Voru þau tilnefnd af samstarfsaðilum Menntamálastofnunar í kjölfar samráðsfundar í vor með fulltrúum úr ýmsum starfandi ungmennaráðum . Í framhaldi af þeim fundi óskaði Menntamálastofnun eftir tilnefningum frá þessum sömu aðilum (Barnaheillum, SAFT, Samfés, Unicef, umboðsmanni barna, UMFÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga) og í framhaldinu hefur ráðið nú verið sett á fót.

Þrír fulltrúar eru af Norðurlandi Það eru þau Hulda Margrét Sveinsdóttir frá Akureyri, hún var tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Haukur Orri Kristjánsson frá Siglufirði sem var tilnefndur af UMFÍ og Brynja Rún Guðmundsdóttir frá Akureyri, tilnefnd af SAMFÉS.

Fulltrúar í ungmennaráði Menntamálastofnunar eru:

1.         Anna Mínerva Kristinsdóttir

2.         Ástþór Jón Tryggvason
3.         Berglín Sólbrá Bergsdóttir
4.         Bjarki Steinar Viðarsson
5.         Brynja Rún Guðmundsdóttir
6.         Eyrún Magnúsdóttir
7.         Guðmunda Bergsdóttir
8.         Guðný Rós Jónsdóttir
9.         Gunnar Ágústsson
10.       Haukur Orri Kristjánsson
11.       Hulda Margrét Sveinsdóttir
12.       Inga Huld Ármann
13.       Ingibjörg Ragnheiður Linnet
14.       Jón Ragnar Magnússon
15.       Júlíus Viggó Ólafsson
16.       Jökull Ingi Þorvaldsson
17.       Kristján Helgason
18.       Marta Valdís Reykdal
19.       Sara Rós Hulda Róbertsdóttir
20.       Sigrún Birna Steinarsdóttir
21.       Sigurður Ingvi Gunnþórsson
22.       Sindri Smárason

Nýjast