Eins og fram hefur komið er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar til fjárlaga fyrir árið 2011, boðaður niðurskurður um sjö hjúkrunarrými á Öldrunarheimilum Akureyrar, auk þess eru þrjú hjúkrunarrými skorin niður á þessu ári. Samanlagt er því um að ræða niðurskurð á 10 hjúkrunarrýmum á Öldrunarheimilum Akureyrar. Þessi niðurskurður er ekki síst alvarlegur í ljósi þess að hjúkrunarrýmum hefur nú þegar fækkað gríðarlega á Akureyri. Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) hefur frá árinu 2005 fækkað hjúkrunarrýmum úr 30 í 7, þar af hefur 5 hjúkrunarrýmum verið lokað á þessu ári. Óvíst er hversu lengi FSA heldur opnum þeim 7 rýmum sem eftir eru. Það er því grafalvarlegt að ráðuneytið boðar nú fækkun um 10 hjúkrunarrými til viðbótar á Akureyri. Verði þessi niðurskurður að veruleika mun hjúkrunarrýmum á Akureyri og í nágrenni fækka um 33 á aðeins 5 árum. Ef FSA lokar þeim rýmum sem þar eru eftir, þá mun hjúkrunarrýmum á svæðinu fækka um 40 eða 20% á örfáum árum, úr 200 í 160. Biðlisti eftir hjúkrunarrýmum hefur þegar myndast á Akureyri og frekari niðurskurður mun leiða af sér ófremdarástand. Nú eru 18 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og 11 á biðlista eftir dvalarrýmum. Auk þess eru 28 einstaklingar á biðlista eftir skammtímadvöl sem er í hluta af leyfðum hjúkrunarrýmum. Boðaður niðurskurður á hjúkrunarrýmum mun hafa alvarlega keðjuverkun í för með sér og m.a. mun þurfa að loka einni deild og segja upp starfsfólki.