Á morgun verður gerð umferðarkönnun á þremur stöðum, Ólafsfjarðarvegi norðan Dalvíkur, Héðinsfirði og við Ketilás í Fljótum. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 23:00.
Búast má við lítilsháttar töfum á umferð vegna þessa en allir bílstjórar sem leið eiga um könnunarstaðina verða beðir að svara örfáum spurningum. Reiknað er með að það taki innan við mínútu að svara könnuninni og er vonast til þess að vegfarendur sýni starfsfólki þolnmæði og skilning.