Um 15 þúsund gestir á Handverkshátíðinni

Frá Handverkshátíðinni í Hrafngili.
Frá Handverkshátíðinni í Hrafngili.

Handverkshátíðinni í Hrafnagili lauk í gær og eru stjórnendur hátíðarinnar ánægðir með aðsóknina. Gert er ráð fyrir að hátíðin hafi fengið um 15.000 heimsóknir. Í fréttatilkynningu segir að eftirtektarvert hafi verið hversu vandaðar vörur voru á boðstólnum í ár og hversu mikinn metnað sýnendur höfðu lagt í sýningarbásana. Handverksmarkaður fór fram á föstudeginum og sunnudeginum með 20 þátttakendum hvorn daginn og vakti hann svo mikla lukku að búast má við að hann verði árlegur viðburður.

Laugardeginum lauk með kvöldskemmtun og verðlaun hátíðarinnar veitt. Valið var erfitt og því var ákveðið að veita tvenn aukaverðlaun að þessu sinni. Báðir aðilarnir sem hlutu aukaverðlaunin eru að taka þátt á hátíðinni í fyrsta sinn.

Handverksmaður ársins 2014

Kristín Þórunn Helgadóttir - Fjöruperlur

Umsögn valnefndar: Kristín  nýtir efnivið úr náttúrunni á frumlegan og áhugaverðan hátt og hefur þróað aðferðir til að vinna úr honum svo afraksturinn verður falleg vara þar sem litir, munstur og form náttúrunnar fá að njóta sín í einfaldleika sínum en í nýju samhengi. 

Sölubás ársins 2014

Hespa – Guðrún Bjarnadóttir

Umsögn valnefndar: Margbreytileiki og látleysi skapa fallega heild

Hvatningarverðlaun

Hildur Harðardóttir – Hildur H. List-Hönnun

Umsögn valnefndar: Hvert og eitt þessara einstöku dýra lýsa miklum sköpunarkrafti

Hvatningarverðlaun

Erling Andersen - Módelbátar

Umsögn valnefndar: Vandað handverk sem greinilega er unnið af mikilli natni

Valnefnd skipuðu:

Arnar Árnason – bóndi á Hranastöðum og stjórnarmaður Handverkshátíðar

Björg Eiríksdóttir – myndlistarmaður og kennari

Rósa Húnadóttir – þjóðfræðingur og með próf í menningarmiðlun

 

Verðlaunagripirnir eru allir og hannaðir af Einari Gíslasyni myndlistamanni frá Brúnum í Eyjafirði

Samstarfið við Saga Travel lukkaðist vel, en þeir sáu um sætaferðir á hátíðina frá Akureyri og verður samstarfinu haldið áfram á næsta ári.

Nýjast