Um 1300 teikningar frá 60 skólum bárust í teiknisamkeppni

Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tilkynnti fyrir skömmu úrslit í teiknisamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins, sem haldinn er hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert. Eins og undanfarin ár barst mikill fjöldi teikninga í samkeppnina sem Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins stendur að hér á landi.  Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, var þátttakan í keppninni nú svipuð og undanfarin ár og bárust um 1300 teikningar frá 60 skólum alls staðar að af landinu.  

Tíu nemendum eru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar að loknu vali á úrtaki mynda sem lagt var fyrir menntamálaráðherra, sem jafnframt er formaður dómnefndar. Markmið keppninnar er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. Neysla mjólkur hefur aukist í grunnskólum á undanförnum árum, sem m.a. má rekja til mjólkurkælivéla sem víða hafa verið settar upp í skólunum. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Að því tilefni, sem fyrr segir, fer árlega fram hér á landi teiknisamkeppni meðal nemanda í fjórða bekk í grunnskólum landsins. Eru verðlaunateikningarnar notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins sem fram fer í september ár hvert.

Vinningshafarnir eru: Sólveig Blær Björnsdóttir Austurbæjarskóla; Þórunn Elísa Þórisdóttir Hvassaleitisskóla;Vladislav Krasovsky Fellaskóla; Hilmar Albertsson Húsaskóla; Logi Gunnarsson Smáraskóla; Hildur Björg Jónsdóttir Hofstaðaskóla; Kristinn Ingi Kristjánsson Gerðaskóla; Sigmar Marijón Friðriksson Gerðaskóla; Álfheiður Agla Oddbjörnsdóttir Grunnskóla Fjallabyggðar; Þorbjörg Una Hafsteinsdóttir Glerárskóla. Hver verðlaunahafanna fær 25 þúsund krónur, sem renna óskiptar í bekkjarsjóð viðkomandi. Vinningsteikningarnar verða senn aðgengilegar á vefslóðinni http://www.ms.is/.

Nýjast