Hann inniheldur eingöngu hágæða mysuprótein og kolvetni sem henta vel eftir æfingar en einnig sem millimáltíð, þá er drykkurinn án hvíts sykurs og sætuefna en með agavesafa. Búnaðurinn sem notaður er til að vinna mysupróteinin úr mysunni er háþróaður og kemur frá APV í Danmörku, en MS-Akureyri var annað mjólkursamlagið í heiminum til að fjárfesta í búnaði af því tagi. Jón Ingi segir að í kjölfar þess að búnaðurinn var tekin í notkun geti samlagið sparað sér hreinsistöð á frárennsli en hún hefði kostað umtalsverða fjármuni. „Heilbrigðiseftirlit gerir þá kröfu að mysu sé ekki hleypt út í frárennsli eins og áður hafði verið gert í áraraðir. Með kaupum á þessum búnaði slógum við tvær flugur í einu höggi, fengum dýrmætt hágæðaprótein og spörum tugi milljóna króna," segir Jón Ingi en mysupróteinið sem til verður er einnig notað í t.d. Gouda ost og kotasælu.
„Viðtökur á Hleðslu hafa verið einkar góðar og starfsfólkið er auðvitað ánægt með þennan góða árangur, drykkurinn var settur á markað í febrúar á þessu ári og það má segja að hann rjúki út," segir Jón Ingi. Tvær bragðtegundir eru í boði nú, jarðarberja og vanillu og segir Jóni Ingi að þess verði ekki langt að bíða að fleiri bragðtegundir verði settar á markað.