Tveir á sjúkrahúsi vegna kórónuveiru
Tveir sjúklingar liggja nú inni með kórónuveiru á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Tæplega fimmtíu starfsmenn sjúkrahússin eru fjarverandi vegna einangrunar eða sóttkvíar.
Í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra er nú tæplega 500 manns skráðir í einangrun og nær 1.100 í sóttkví vegna Covid 19. Af þeim 1300 smitum sem greindust síðasta sólarhring voru 95 á nærsvæði SAk. Sjúkrahúsið er á hættustigi.
Áfram mun verða skerðing á valkvæðum skurðaðgerðum og einnig verður áfram frestun á opnun fimm daga deildar Kristnesspítala. Staðan er metin daglega. Gert er ráð fyrir að hægt sé að veita undanþágur ef talið er að töf verði til skaða fyrir sjúklinga að því er fram kemur í pistli viðbragðsstjórnar á vef SAk. Forstöðumenn eru beðnir að skipuleggja starfsemi sinna eininga í samræmi við þetta þar sem það á við.
Vantar blóð
Mikil vöntun er á blóði á landsvísu þessa dagana og eru mögulegir blóðgjafar hvattir til að gefa blóð og styrkja þannig viðbragð heilbrigðiskerfisins.
Athugasemdir