Tveggja marka sigur KA/Þórs gegn FH

Martha Hermannsdóttir skoraði 5 mörk fyrir KA/Þór í dag.
Martha Hermannsdóttir skoraði 5 mörk fyrir KA/Þór í dag.

KA/Þór fékk sín fyrstu stig í N1-deild kvenna er liðið lagði FH að velli í KA-heimilinu í dag, 24-22. FH-stúlkur voru sterkari aðilinn framan af og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 13-10. KA-stúlkur sneru dæminu við í seinni hálflei og það var ekki síst fyrir frammistöðu færeyska markvarðarins, Fridu Petersen, að KA/Þór landaði að lokum tveggja marka sigri, 24-22, en Frida varði 18 skot í leiknum.

Jafnt var í tölum lengst af í fyrri hálfleik og liðin skiptust á að skora. FH var þó alltaf skrefinu á undan og hafði minna fyrir sínum mörkum. FH-stúlkur náðu þriggja marka forystu, 10-7, eftir tuttugu mínútna leik og sá munur hélst út hálfleikinn. Staðan 10-13 í hálfleik. Verðskulduð forysta en FH-stúlkur voru fastar fyrir í vörninni og vörnin tók ófá skot heimamanna utan af velli en sóknarleikur KA/Þórs ansi brösóttur.

Norðanstúlkur fengu væntanlega orð í eyra frá Guðlaugi Arnarssyni þjálfara í hálfleik og mættu mun grimmari í þann seinni. KA/Þór jafnaði metin í 14-14 og komust svo marki yfir,15-14, í fyrsta skiptið í leiknum eftir níu mínútna leik í seinni hálfleik. Leikurinn var stál í stál næstu mínútur þar sem liðin skiptust á að hafa forystu.

Með frábærum leikkafla náðu norðanstúlkur þriggja marka forystu, 21-18, er tíu mínútur lifðu leiks og Jóni Gunnlaugi Viggósyni þjálfara FH var nóg boðið og tók leikhlé. Það skilaði þó litlu og heimastúlkur juku muninn í fjögur mörk, 22-18, og fimm mínútur eftir. Martha Hermannnsdóttir gerði svo út um leikinn með 24 marki KA/Þórs þegar rúmlega mínúta var eftir og fjögurra marka munur. FH skoraði síðasta mark leiksins og lokatölur, 24-22.

Mörk KA/Þórs: Kolbrún Einarsdóttir 7, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Erla Heiður Tryggvadóttir 5, Martha Hermannsdóttir 5 (1), Ásdís Sigurðardóttir 2, Arna Valgerður Erlingsdóttir 1.
Varin skot:
Frida Peterson 18.

Mörk FH: Kristrún Steinþórsdóttir 6 (1), Birna Helgadóttir 4, Ingibjörg Pálmadóttir 3, Indiana Jóhannsdóttir 3, Steinunn Snorradóttir 2, Hind Hannesdóttir 1, Berglind Björgvinsdóttir 1, Sigrún Jóhannsdóttir 1.
Varin skot
: Elísabet Malmberg 11, Hildur Guðmundsdóttir 7.

Myndir að neðan

Nýjast