Tvær ungar stúlkur fluttar á slysadeild eftir umferðarslys
Tvær 17 ára stúlkur slösuðust þegar önnur þeirra missti stjórn á bíl sínum á Krossanesbraut á Akureyri í gærkvöld með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af og hafnaði á hvolfi ofan í skurði. Stúlkurnar komust af sjálfsdáðum út úr bílnum og upp á veg, en voru fluttar slysadeild Sjúkrahússina á Akureyri, enda önnur með áverka á höfði og hin kenndi eymsla í baki.
Þetta mun vera þriðja umferðaróhappið sem hendir stúlkuna sem ók, á örstuttum ökumannsferli hennar, segir á visir.is.