Sýning Önnu Maríu, sem ber yfirskriftina; Herrar, menn, stjórar, verður opnuð kl. 15.00 á morgun laugardag og hún verður opin á opnunartíma Safnaðarheimilisins. Verkefni pólsku ljósmyndaranna og íslensku rithöfundanna var unnið í því skyni að spegla Ísland í myndum og orðum. Álfar, einbúar, vatnadísir, vegasjoppur og leitin að „innsta eðli Íslands." Ljósmyndasýningin er afrakstur verkefnis sem Sputnik photos ákvað að ráðast í með styrk frá Menningarsjóði Póllands og EES / EFTA ríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs. Á sýningunni má sjá afrakstur úr ferðalögum pólsku ljósmyndaranna og íslensku rithöfundanna sem ferðuðust um landið á síðasta ári. Auk sýninganna verður gefin út vegleg bók og margmiðlunarefni. Heiti sýningarinnar á ensku er IS(not) og ber bókin það nafn. Sýningarstjóri og ritstjóri bókarinnar er Andrzej Kramarz. Marzena Michalek er verkefnisstjóri fyrir hönd Sputnik photos.
Sýningin í Hofi verður opnuð kl. 16.00 á morgun laugardag og stendur til 6. mars næstkomandi. Aðstandendur sýningarinnar verða á staðnum á morgun og kynna verkefnið. Sýningin fer síðan suður, verður í menningarmiðstöðinni Gerðubergi og Listasafni Árnesinga 12. mars til 8. maí. Í Póllandi verður sýnt í Varsjá, Kraká, Gdansk og víðar. Sjá nánari upplýsingar um verkefni Sputnik photos á heimasíðunni http://www.sputnikphotos.com/