Tónleikar til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur

Á morgun, miðvikudaginn 16. mars kl. 18:00 og fimmtudaginn 17. mars kl. 20:00 verða haldnir tvennir tónleikar til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur. Á morgun koma fram nemendur í miðnámi og á fimmtudag nemendur í framhaldsnámi. Tónleikarnir eru í Hömrum í Hofi. Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum í sjóðinn.  

Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972.  Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt  Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikar helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.

Nýjast