Tónleikar með íslenskum einsöngslögum fyrir sópran og píanó

Rannveig Káradóttir sópran og Birna Hallgrímsdóttir píanóleikari halda fimm tónleika á Norðurlandi og Egilsstöðum á næstunni, þar sem þær flytja íslensk einsöngslög fyrir sópran og píanó. Fyrstu tónleikarnir verða í Reykjahlíðarkirkju við Mývatn föstudaginn 15. júlí kl. 21.00. Sunnudaginn 17. júlí verða tónleikar í Húsavíkurkirkju kl. 17.00 og þriðju tónleikarnir verð menningarhúsinu Bergi á Dalvík þriðjudaginn 19. júlí kl. 20.30.  

Miðvikudaginn 20. júlí kl. 20.30 verða tónleikar í Egilsstaðakirkju og ferðinni lýkur svo á Akureyri með hádegistónleikum í Ketilhúsinu föstudaginn 22. júlí. Íslenska náttúran er sterkt afl sem er ekki einungis megnugt að stöðva flugumferð í heiminum og brjóta niður brýr heldur hefur í gegnum aldirnar verið ljóð- og tónskáldum innblástur og getið af sér óumræðanlega dýrmætar perlur, segir í kynningu. Hvert lag á efnisskránni er tileinkað ákveðnum hlut eða fyrirbæri sem finnst í eða tengist íslenskri náttúru. Til að auka áhrif tónlistarinnar verða flytjendur umkringdir ljósmyndum af náttúru Íslands. Samspil orða, tónlistar og mynda munu skapa andrúmsloft sem verður einstök upplifun fyrir tónleikagestinn. Textar laganna samanstanda af nokkrum gömlum þjóðvísum og ljóðum eftir mörg af okkar ástsælustu skáldum: Einar Benediktsson, Tómas Guðmundsson, Jónas Hallgrímsson, Huldu, Höllu Eyjólfsdóttur og Halldór Laxness og fleiri.  Lögin eru eftir Inga T. Lárusson Steingrím Thorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns, Sigurð Þórðarson, Atla Heimi Sveinsson, Jórunni Viðar, Karl O. Runólfsson og fleiri. Miðaverð 1.500 kr.

Nýjast