Tveir svonefndir tölvupungar, til að tengja tölvur við Internetið, fundust við leit starfsmanna Fangelsismálastofnunar og lögreglunnar á Akureyri í klefum í fangelsinu á Akureyri í gærkvöld. Slíkur búnaður er bannaður í fangelsum að gefnu tilefni, þar sem fangar hafa notað hann til að stunda ýmsa ólöglega starfssemi úr fangaklefum sínum í gegn um netið. Ekki fundust fíkniefni að þessu sinni, en aðgerðin tók um tvær klukkustundir. Að jafnaði dvelja um tíu fangar í fangelsinu á Akureyri. Þetta kemur fram á visir.is.