„Tökum höndum saman“

Sigríður Hauksdóttir verkefnastjóri félagsþjónustu Norðurþings. Mynd: epe
Sigríður Hauksdóttir verkefnastjóri félagsþjónustu Norðurþings. Mynd: epe

Á morgun og föstudag fer fram ráðstefna á vegum Hugarafls, Norðurþings og Lifa undir yfirskriftinni „Tökum höndum saman“.

Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings setur ráðstefnuna í sal Framsýnar á morgun fimmtudag kl. 13.

„Á morgun verður einblínt á geðræktarmál almennt en á föstudag ætlum við að leggja meiri áherslu á sjálfsvígsforvarnir,“ segir Sigríður Hauksdóttir verkefnastjóri hjá félagsþjónustu Norðurþings en hún var í ítarlegu viðtali hjá Vikudegi.is um geðræktarmál sem birt verður innan skamms.

Kveikjan að ráðstefnunni sem hefst á morgun var heimsókn Sigríðar til Hugarafls í júlí s.l. sem er með stærri geðræktarmiðstöðum Reykjavíkur, en Sigríður hefur verið með geðræktarmál Norðurþings á sinni könnu. Hún sá m.a. um Setrið, geðræktarmiðstöð þar til því var lokað í desember á síðasta ári. Hún brá þá á það ráð að taka starfsemi Setursins inn í Miðjuna sem einnig rekur dagþjónustu fyrir fatlaða. Hún segir það hafa gengið ótrúlega vel að samhæfa geðræktina við þá starfsemi sem fyrir var í Miðjunni, en bendir á að betur megi hlúa að geðræktinni.

„Það er draumur hjá mér að efla geðræktarstarfið í sveitarfélaginu, mér finnst við ekki vera sinna því sem skyldi,“ segir Sigríður.

Á ráðstefnunni mun Auður Axeldóttir kynna starfsemi og hugmyndafræði PIETA á Íslandi sem er sjálfsvígsforvarnamiðstöð að írskri fyrirmynd. En PIETA House á Írlandi hefur náð undraverðum árangri þar í landi í forvörnum sjálfsvíga og hlotið fjölda viðurkenningar fyrir starf sitt. PIETA House var sett á laggirnar fyrir tíu árum síðan.

Þá munu unghugar Hugarafls halda erindi og heimsækja bæði Borgarhólsskóla og Framhaldsskólann á Húsavík.

Dagskrána má sjá í heild sinni hér að neðan, en Vikudagur.is mun fjalla ítarlega um ráðstefnuna og geðræktarmál á næstu dögum og vikum.

Fimmtudagurinn 20. október

13:00-13:15    Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings setur ráðstefnuna

13:15-14:00    Hugmyndafræði sem virkar; Auður Axelsdóttir

14:00-14:30    Andlegt hjartahnoð, eCPR; Einar Björnsson, Málfríður Hrund Einarsdóttir
                        og Auður Axelsdóttir

~Kaffihlé~

 

14:50-15:05    Með master í kvíða, félagsfælni og þunglyndi. Reynslusagaúr myrkrinu; Eymundur Eymundsson, Grófinni Akureyri

15:05-15:20    Vinnum saman; Hlynur Már Erlingsson

15:20-15:30    Unghugar Hugarafls; Fjóla Ólafardóttir og Magnús Guðrúnarson

15:30-16:00    Opin umræða

 

Föstudagurinn 21. október

10:00-12:00    Bati af geðrænum veikindum. Vinnusmiðja fyrir notendur og fagfólk; Svava Arnardóttir

10:00-12:00    Fundur með aðstandendum sem hafa misst ástvini; Auður Axelsdóttir og Benedikt Þór Guðmundsson

~Hádegishlé~

12:40-13:30    Aðstandendur: sjálfsvíg ástvina; Auður Axelsdóttir og Benedikt Þór Guðmundsson

13:30-13:40    Svefninn stutti; Guðmundur Hermann Gunnarsson 

13:40-14:15    Pieta sjálfsvígsforvarnir

~Kaffihlé~

14:35-14:55    Tökum höndum saman á Húsavík; Sigríður Hauksdóttir

15:00-16:00    Pallborðsumræður

 

 

Nýjast