Þungamiðjan færist til Húsavíkur

Norðlenska á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson
Norðlenska á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson

Aukin þungi á grunnframleiðslu kjötvinnslufyrirtæksins Norðlenska á Akureyri mun færast til Húsavíkur á næstu árum. Þetta segir Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Norðlenska. Fyrirtækið hefur keypt húseignir útgerðarfélagsins Vísis á Húsavík, alls um 5 þúsund fermetra sem Norðlenska fær afhent í þessum mánuði.  „Við horfum til þess að uppbygging fyrirtækisins í framtíðinni verði á Húsavík. Við höfum verið að samnýta fólk og komum til með að gera það í ríkari mæli þegar Vaðlaheiðargöng verða opnuð. Þá munum við samnýta bæði fólk og verkferla ennfrekar,“ segir Sigmundur.

Tíu ára leigusamningur Norðlenska í húsakynnum þess á Akureyri rennur út í lok árs 2017. Hann segir óvíst hvort leigusamningurinn verði endurnýjaður.

throstur@vikudagur.is

Nánar er fjallað um málið og rætt við Sigmund í prentútgáfu Vikudags

Nýjast