Þröstur Friðfinnsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Grýtubakkahrepps frá 1. ágúst nk. Þröstur er Þingeyingur og uppalinn á Húsavík. Alls sóttu 21 um starfið. Þröstur lét nýverið af störfum sem framkvæmdastjóri hjá Dögun ehf. eftir 10 ára starf. Þar áður var Þröstur útibússtjóri Landsbanka Íslands í 15 ár, fyrst á Kópaskeri og síðan á Sauðárkróki. Frá þessu er sagt á Grenivík.is.
Þröstur segir á heimasíðu Grenivíkur að það sé honum mikill heiður en jafnframt áskorun að setjast í stól Guðnýjar Sverrisdóttur, fráfarandi sveitarstjóra, sem hafi skilað frábæru starfi. Þá líst mér sérlega vel á að vinna með sveitarstjórninni, þar sýnist mér vera mjög hæft og áhugasamt fólk sem segir nokkuð um íbúana almennt. Við hlökkum til að koma á staðinn og kynnast þeim öllum, segir Þröstur