Þrjár skandinavískar listakonur sýna í New York
Listakonurnar Dagrún Matthíasdóttir frá Íslandi, Gunn Morstöl frá Noregi og Helen Molin frá Svíþjóð opnuðu sýninguna Delicious í Cælum Gallery í Chelsea á Manhattan í New York nú í vikunni og tóku á móti gestum í formlegu opnunarteiti í gær. Listakonurnar hittust á stórri samsýningu í Eyjafirði, Staðfugl-Farfugl árið 2008 og ákváðu þá að hittast og sýna saman í framtíðinni sem nú er orðið að veruleika.
Dagrún Matthíasdóttir sýnir málverk unnin með olíu og blandaðri tækni og er umfjöllunarefnið matur og matgæðingar. Helen Molin er búsett í Gautaborg í Svíþjóð, sýnir stór málverk unnin með eggtempúru og fjallar um skynjun hins mannlega í bland við náttúruna. Gunn Morstöl er frá Isfjorden í Noregi. Hún sýnir málverk unnin með blandaðri tækni og ætingu, þæfða skúlptúra og textílverk og er umfjöllunarefnið rómantískt og fjallar um mannleg samskipti. Sýningin stendur til 8. október.
Nánar: http://caelumgallery.com