Þrjár athugasemdir við deiliskipulagsbreytingu í miðbænum

Þrjár athugasemdir frá 17 aðilum bárust við tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir norðurhluta miðbæjar Akureyrar en athugasemdafrestur rann út á dögunum. Málið verður tekið til umfjöllunar á fundi skipulagsnefndar í vikunni. Deiliskipulagsbreytingin nær til Hólabrautar, Laxagötu, Smáragötu og hluta Gránufélagsgötu.  

Tillagan gerir m.a. ráð fyrir sameiningu þriggja lóða við Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins við Hólabraut í eina, Hólabraut 16, og breyttri aðkomu að versluninni. Þá er gert ráð fyrir því að Laxagata verði einstefnugata en Hólabraut og Smáragata botnlangagötur.

Breytingin tengist m.a. fyrirhugaðri viðbyggingu við húsnæði ÁTVR. Íbúar á þessu svæði hafa ekki verið sáttir við þá hugmynd að stækka húsnæði Vínbúðarinnar og þar er reyndar almenn óánægja með staðsetningu hennar við Hólabraut. Fyrr í vetur felldi úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála úr gildi ákvörðun skipulags- og byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við húsnæði ÁTVR en það voru íbúar við Laxagötu sem sendu kæru til úrskurðarnefndar. Þá áttu framkvæmdir við viðbygginguna að vera hafnar í kjölfar útboðs.

Í framhaldinu var fundað með íbúum við Hólabraut og Laxagötu og komu ýmsar ábendingar frá þeim. Deiliskipulagsbreytingin var svo auglýst í mars sl. og athugasemdarfrestur rann út þann 20. apríl sl. Það skýrist væntanlega á fundi skipulagsnefndar, hvert framhaldið verður.

Nýjast