Þrír ráðnir hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Guðmundur Magnússon
Guðmundur Magnússon

Ráðnir hafa verið þrír lykilstjórnendur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Guðný Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar, Örn Ragnarsson hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lækninga og Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og stoðþjónustu. Guðný lauk B.Sc. námi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 1996 og MBA námi frá Háskóla Íslands árið 2008. Guðný starfaði á námsárum á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík. Á undanförnum árum hefur Guðný unnið bæði á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á Landsspítalanum. Nú síðast sem verkefnastjóri og formaður hjúkrunarráðs á Landspítala.

Örn lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1985 og sérfræðingsnámi í heimilislækningum í Svíþjóð. Örn hefur starfað við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki frá árinu 1993 og verið bæði yfirlæknir og framkvæmdastjóri lækninga á stofnunni síðast liðin ár.

Guðmundur hefur meistaragráðu í rekstrar- og stjórnunarverkfræði frá Álaborgarháskóla og stundar nú meistaranám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri. Guðmundur hefur starfað sem ráðgjafi, framkvæmdastjóri Lundar rekstrarfélags og kennt gæðastjórnun, rekstrarstjórnun og nýsköpun við Háskólann á Akureyri.

 

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tók til starfa þann 1. október 2014 við sameiningu  Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, Heilsugæslunnar á Akureyri, Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík, Heilbrigðisstofnunarinnar í Fjallabyggðar, Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi.

Nýjast