28. febrúar, 2011 - 19:45
Fréttir
Akureyringar eru fyrirferðarmiklir í nýrri landskjörstjórn sem kosin var á Alþingi í dag. Þrír af fimm aðalmönnum í
nýrri landsstjórn eru frá Akureyri, þeir Freyr Ófeigsson fyrrverandi héraðsdómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra,
Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður á Akureyri og Jakob Björnsson framkvæmdastjóri og fyrrverandi bæjarfulltrúi og
bæjarstjóri á Akureyri.
Hinir tveir aðalmenn í landsstjórn eru þau Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður og Sigrún Benediktsdóttir
héraðsdómslögmaður. Varamaður var kjörin Linda Bentsdóttir lögmaður í stað Sólveigar Guðmundsdóttur. Fráfarandi
landsstjórn sagði af sér í lok janúar, eftir að Hæstiréttir ógilti kosningar til stjórnlagaþings.