Þorvaldur Lúðvík segir starfi sínu lausu
Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þorvaldur verður félaginu innan handar þar til búið verður að ráða nýjan framkvæmdastjóra, en staðan verður auglýst til umsóknar innan skamms.
„Við þökkum Þorvaldi fyrir mjög vel unnin störf og góðan árangur félagsins á umliðnum árum. Það er mikill missir að honum, en að sama skapi opnast hér áhugavert tækifæri fyrir framsækna og þróttmikla einstaklinga“ segir Unnar Jónsson, stjórnarformaður AFE.
„Ég hef á undanförnum mánuðum tekið þátt í undirbúningi fyrirtækis í flugtengdri starfsemi, sem liggur auðvitað nærri áhugasviði mínu. Nú lítur út fyrir að þetta geti orðið að veruleika og því rétt að hverfa á braut úr núverandi starfi til að einhenda mér í verkefni á nýjum vettvangi. Ég hverf afskaplega sáttur og þakklátur á brott, en stuðningur samfélagsins hér og góður hugur hefur verið mér mikilvægur. Þetta er búinn að vera skemmtilegur tími og ég skil við félagið í góðu horfi með spennandi verkefni í farvatninu“ segir Þorvaldur Lúðvík. /epe