Ég ætla að bjóða lesendum upp á fiskrétt sem ég gríp oft til. Hann er einfaldur og mælist alltaf vel fyrir. Svo er alveg nauðsynlegt að fá sér smá desert á eftir góðum fiski, segir Margrét Melstað sem sér um matarkrók vikunnar að þessu sinni.
Þorskhnakkar í ofni
3 msk olía
Salt og pipar
Þorskhnakkar
Berið olíu í botninn á ofnföstu fati og stráið svolítið af salti og pipar í fatið. Leggið þorskinn í fatið, penslið smá olíu yfir og kryddið með salti og pipar. Bakið þorskinn í 12 mín í 180°C heitum ofni.
Kartöflumús
2 sætar kartöflur
1,5 dl mjólk
4-5 msk rjómi
40 gr smjör
Salt og pipar
Skrælið kartöflur og skerið í litla bita. Sjóðið í saltvatni í 15 mín. Hellið kartöflunum í sigti, látið rjúka úr þeim í 1 mín og setjið þær síðan aftur í pottinn. Maukið kartöflurnar með stappara og bætið mjólk, rjóma og smjöri smátt og smátt saman við. Sláið saman í mjúka kartöflumús. Kryddið með salti og pipar
Vorlauks- og tómatblanda
5-6 vorlaukar, sneiddir
3-4 msk olía
1 dl góðar ólífur, skornar í tvennt
1 krukka sólkysstir tómatar í olíu
2-4 msk steinselja
Steikið vorlauk í olíu þar til hann er orðin mjúkur, bætið ólífum, tómötum og steinselju saman við og hitið vel í gegn.
Setjið kartöflumús á 4 diska, leggið þorskinn ofan á og hellið vorlauks- og tómatblöndunni yfir.
Drottningar desert
2 bananar
3 kiwi
Jarðarber
½ dós ananaskurl
Lady fingers kökur, 1 ½ pakki
½ l rjómi, þeyttur
Suðusúkkulaði 100 gr
1/8 l mjólk
Kökur bleyttar upp úr ananassafa + 1 msk romm, lagt í skál, niðurskornum ávöxtum raðað ofan á, rjómi settur yfir, súkklaði sett yfir (brætt yfir vatnsbaði + mjólk + 1 msk romm)
Þetta er gert 3svar sinnum. Geymt í kæli í nokkra klukkutíma.
Verði ykkur að góðu. Ég skora á vinkonu mína hana Báru Höskuldsdóttir, listakokk með meiru, að koma með eitthvað spennandi í næsta blað.