Þorskhnakkar og drottningar desert

„Ég ætla að bjóða lesendum upp á fiskrétt sem ég gríp oft til. Hann er einfaldur og mælist alltaf vel fyrir. Svo er alveg nauðsynlegt að fá sér smá desert á eftir góðum fiski,” segir Margrét Melstað sem sér um matarkrók vikunnar að þessu sinni.

 

Þorskhnakkar í ofni

3 msk olía

Salt og pipar

Þorskhnakkar

Berið olíu í botninn á ofnföstu fati og stráið svolítið af salti og pipar í fatið. Leggið þorskinn í fatið, penslið smá olíu yfir og kryddið með salti og pipar. Bakið þorskinn í 12 mín í 180°C heitum ofni.

Kartöflumús

2 sætar kartöflur

1,5 dl mjólk

4-5 msk rjómi

40 gr smjör

Salt og pipar

Skrælið kartöflur og skerið í litla bita. Sjóðið í saltvatni í 15 mín. Hellið kartöflunum í sigti, látið rjúka úr þeim í 1 mín og setjið þær síðan aftur í pottinn. Maukið kartöflurnar með stappara og bætið mjólk, rjóma og smjöri smátt og smátt saman við. Sláið saman í mjúka kartöflumús. Kryddið með salti og pipar

Vorlauks- og tómatblanda

5-6 vorlaukar, sneiddir

3-4 msk olía

1 dl góðar ólífur, skornar í tvennt

1 krukka sólkysstir tómatar í olíu

2-4 msk steinselja

Steikið vorlauk í olíu þar til hann er orðin mjúkur, bætið ólífum, tómötum og steinselju saman við og hitið vel í gegn.

Setjið kartöflumús á 4 diska, leggið þorskinn ofan á og hellið vorlauks- og tómatblöndunni yfir.

 

Drottningar desert

2 bananar

3 kiwi

Jarðarber

½ dós ananaskurl

Lady fingers kökur, 1 ½ pakki

½ l rjómi, þeyttur

Suðusúkkulaði 100 gr

1/8 l mjólk

Kökur bleyttar upp úr ananassafa + 1 msk romm, lagt í skál, niðurskornum ávöxtum raðað ofan á, rjómi settur yfir, súkklaði sett yfir (brætt yfir vatnsbaði + mjólk + 1 msk romm)

Þetta er gert 3svar sinnum. Geymt í kæli í nokkra klukkutíma.

 

„Verði ykkur að góðu. Ég skora á vinkonu mína hana Báru Höskuldsdóttir, listakokk með meiru,  að koma með eitthvað spennandi í næsta blað.”

 

Nýjast