Þóroddur nýr formaður stjórnar Byggðastofnunar
Samkvæmt því skal ráðherra skipa beint í stjórn stofnunarinnar þar sem hann/hún ber ábyrgð á stofnuninni og gagnvart
Alþingi samkvæmt ráðherraábyrgð. Í nýju stjórninni eiga sæti þau Þóroddur Bjarnason prófessor á hug- og
félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri en hann er jafnframt formaður stjórnarinnar, Ásta Dís Óladóttir
framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, Guðmundur Gíslason framkvæmdastjóri Gámaþjónustu Austurlands, Gunnar Svavarsson
sjálfstætt starfandi ráðgjafi, Sigurborg Kr. Hannesdóttir framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Ildi, Valdimar Hafsteinsson
framkvæmdastjóri Kjöríss og Ólöf Hallgrímsdóttir, ferðaþjónustubóndi á Vogum í Mývatnssveit.
Varamenn í stjórn eru Þorsteinn Gunnarsson f.v. rektor Háskólans á Akureyri, Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri fjármála-
og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík, Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Set ehf., Matthildur Helgadóttir
Jónudóttir framkvæmdastjóri Tölvuþjónustunnar Snerpu, Jóna Árný Þórðardóttir
greiningarsérfræðingur innra eftirlits hjá Alcoa Fjarðaáli, Laufey Helgadóttir hótelhaldari á Hótel Smyrlabjörgum,
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir lektor við Háskólann á Hólum.