Þorgerðartónleikar í Hofi á morgun mánudag

Á morgun, mánudaginn 12. mars nk. kl. 18:00, verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur. Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972.  Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt  Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikar helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta. Á tónleikunum koma fram nemendur  á efri stigum og flytja fjölbreytta dagskrá. Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum í sjóðinn.

 

Nýjast