Í dag boðar áhugahópur yndisferðamennsku í Þingeyjarsveit til samtalsfundar með íbúum og ferðaþjónustuaðilum í Þingeyjarsveit við Edward H. Huijbens, sérfræðing við Rannsóknarmiðstöð ferðamála og prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri. Fundurinn verður haldinn í Breiðumýri í Reykjadal frá kl. 15.00 – 18.00.
Sérstök áhersla verður lögð á tækifæri í náttúruferðum, náttúruupplifun, heilsu og vellíðan og heildar stefnu í ferðaþjónustu. JS