Frístundakortið er í formi bréfs sem sent hefur verið til forráðamanna barna á grunnskólaaldri með lögheimili í sveitarfélaginu. Hvert bréf er merkt viðkomandi barni og því verður hægt að framvísa sem greiðslu upp í þátttökugjald hjá mörgum íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum og dansskólum. Auk þess gildir það sem greiðsla fyrir sundmiða viðkomandi barns í sundlauginni á Þelamörk, segir á vef sveitarfélagsins.