Ennfremur kemur fram í bókuninni að það taki Hríseyinga að lágmarki 3 tíma að sækja lækni með tilheyrandi aukakostnaði og vinnutapi til Dalvíkur og í sumum tilfellum þurfi samferðarmann með eldra fólki til að sækja læknisþjónustu og að þá sé þetta veruleg og mikil skerðing við íbúa þessa samfélags. "Það væri strax til hins betra ef hægt væri að sinna þessari þjónustu með það í huga að læknir kæmi til Hríseyjar hálfsmánaðarlega og að sjálfsögðu kæmi hann ekki ef ekki væri pantaður tími, þetta er lágmarksþjónusta sem hægt er að bjóða íbúum og tökum við þá þátt í því að taka á okkur þjónustuskerðingu á þessum niðurskurðartímum. Hverfisráð hvetur hins vegar bæjaryfirvöld til þess að reyna að ná samningi við heilbrigðisráðuneyti hið fyrsta þannig að við Hríseyingar tilheyrum heilsugæslu Akureyrar ef ekki er hægt að semja um mildari skerðingu af hálfu Heilsugæslustöðvar Dalvíkur. Betra og hagkvæmara er fyrir íbúa eyjarinnar að sækja læknisþjónustu til Akureyrar því það er þá hægt að nýta ferðina til að útrétta ofl., þó það sé lengra að fara," segir einnig í bókun hverfisráðs.
Einnig var á fundinum í morgun lagt fram til kynningar bréf frá Anitu Aanesen forstjóra Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík með athugasemdum við bókun frá fundi bæjarráðs í síðustu viku. Þá gerði bæjarstjóri grein fyrir stöðu heilsugæslumála í Hrísey og kom fram í bókun að Heilsugæslustöðin á Dalvík hafi ákveðið að hætta þjónustu í Hrísey.