Talið í kvöld í Norðausturkjördæmi

Stefnt er því að talning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi hefjst klukkan 19 í Kaupangi á Akureyri.

Talning átti að hefjast í morgun, en sökum ófærðar var ekki hægt að koma kjörgögnum frá Austurlandi til Akureyrar.

Guðmundur Skarphéðinsson starfsmaður kjörnefndar segir að kjörgögnin séu nú á leiðinni og verði væntanlega komin í hús innan skamms, þannig að hægt verði af hefja talningu klukkan 19:00. Hann áætlar að talning taki 6-8 klukkustundir.

Riflega 2000 kusu í prófkjörinu, en um 4000 voru á kjörskrá.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast