Sýningin MATUR-INN 2011 í Íþróttahöllinni í byrjun október
MATUR-INN 2011 er því kjörinn kynningarvettvangur fyrirtækja og endurspeglar sýningin norðlenska matarmenningu, hvort heldur er framleiðsla,
veitingastarfsemi, matartengd ferðaþjónusta eða verslun. Líkt og áður er lagt upp úr því að sýningin verði fjölbreytt.
Í boði verða sýningarsvæði fyrir fyrirtæki og félagasamtök, markaðssvæði verður einnig þar sem kjörið er að
selja haustuppskeruna eða hvað annað sem tengist mat og matarmenningu. Á sýningarsvæðinu verða einnig skemmtilegar keppnir eða uppákomur sem gestir
geta fylgst með og fleira mætti nefna. Í senn verður því um að ræða fróðleik og skemmtun. Aðgangur að sýningunni verður
ókeypis.
Eins og áður segir verður sýningin á laugardegi og sunnudegi, 1. og 2. október. Opnunartími verður báða dagana kl. 11-17. Á
markaðstorgi verður aðstaða við söluborð en að öðru leyti sjá aðilar sjálfir um sína aðstöðu. Gjald fyrir aðila er
15.000 fyrir alla helgina. Undirstrikað er að aðilar á markaðnum þurfa að uppfylla öll skilyrði sem heilbrigðiseftirlit gerir til sölu af
þessu tagi. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í sýningunni eru beðnir að senda skráningu á
tölvupóstfangið johann@athygli.is.