Svört atvinnustarfsemi verður ekki liðin

Björn Snæbjörnsson
Björn Snæbjörnsson

Blessunarlega gefur árangur vísindamanna og lyfjafyrirtækja tilefni til að ætla að nú sjái fyrir endann á heimsfaraldrinum og að eðlilegt líf komist í nokkurn veginn eðlilegt horf með hækkandi sól. Þar með fara hjól atvinnulífsins að snúast hraðar.

Sameiginlegir sjóðir til hjálpar

Sem betur fer var ríkissjóður ágætlega í stakk búinn til þess að grípa til ýmissa mótvægisaðgerða, gríðarlegum fjármunum hefur verið varið úr sameiginlegum sjóðum til þess að verja atvinnulífið, meðal annars varðandi launakostnaðinn. Segja má að ferðaþjónustan hafi verið sett á ís. Í þessu sambandi er þó rétt að hafa í huga að fyrir heimsfaraldurinn benti margt til þess að vöxtur greinarinnar væri á undanhaldi.

Í kjölfar bankahrunsins 2008 varð íslensk ferðaþjónusta á skömmum tíma ein helsta atvinnugrein landsins, og nú gerum við okkur væntingar um að fólk verði senn  tilbúið til að ferðast. Ísland er í góðri stöðu sem ferðamannaland. Sömuleiðis er ekki ólíklegt að ímynd Íslands hafi styrkst vegna viðbragða við heimsfaraldrinum og þess vegna verði litið til landsins sem vænlegs áfangastaðar.

Svört atvinnustarfsemi

Á undanförnum árum hefur færst mjög í vöxt að tilkynningar um svarta atvinnustarfsemi berist til verkalýðshreyfingarinnar, innan ferðaþjónustunnar eru slíkar tilkynningar áberandi. Oft á tíðum virðist vera einbeittur brotavilji innan fyrirtækjanna og mörg dæmi eru um stórfelld svik og kjarasamningar þverbrotnir.

Slíkt er auðvitað ekki hægt að líða og ég undirstrika að greinin hefur verið styrkt fjárhagslega í kjölfar heimsfaraldursins úr sameiginlegum sjóðum landsmanna.

Starfshópur Alþýðusambands Íslands um framtíð ferðaþjónustunnar hefur skilað skýrslu til miðstjórnar sambandsins, þar sem stefnuskjal með áherslum ASÍ um uppbyggingu ferðaþjónustunnar var samþykkt. Í skýrslunni er bent á að í stefnu stjórnvalda um ferðaþjónustuna er ekki með einu orði vikið að starfsfólki í greininni. Starfsfólkið er auðvitað einn af hornsteinum greinarinnar. Undirstrikað er að verkalýðshreyfingin eigi skýlausan rétt á aðkomu að stefnumótun stjórnvalda um framtíð og enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar.

Gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði

  • ASÍ krefst þess að brotastarfsemi í ferðaþjónustu verði upprætt þegar í stað.
  • Frumvarp til starfskjaralaga með sterku ákvæði um sektir verði lagt fram á Alþingi án tafar og stjórnvöld tryggi að brotamenn þurfi að gjalda fyrir brot sín.
  • Verkalýðshreyfingin krefst þess að gildandi reglum, um erlend fyrirtæki sem skipuleggja ferðir á Íslandi, verði breytt til að uppræta brotastarfsemi.
  • Félagsleg undirboð í ferðaþjónustu verði stöðvuð. Sem dæmi um birtingarmyndir þeirra er þegar ungmenni, oft erlend, eru látin vinna launalaust sem sjálfboðaliðar eða „starfsnemar“ og þegar erlend fyrirtæki standa að ferðum til Íslands og notast við erlent starfsfólk sem ekki nýtur kjarasamningsbundinna launa og réttinda.
  • Frumvarp um atvinnurekstrarbann verði samþykkt á Alþingi þegar í stað, en því er ætlað að koma í veg fyrir kennitöluflakk.
  • Stórefla þarf eftirlit með húsnæði sem atvinnurekendur útvega starfsfólki og tryggja að þar sé ekki farið á svig við lög og reglur.

Atvinnurekendur þekki réttindi og skyldur

Verkalýðshreyfingin telur að gera beri kröfu um lágmarksþekkingu (t.d. námskeið) stofnenda/rekstraraðila fyrirtækja. Sá sem hefur með rekstur fyrirtækis og mannahald að gera ljúki námskeiði þar sem farið er yfir starfsmannahald réttindi og skyldur. Verkalýðshreyfingin gengst fyrir trúnaðarmannanámskeiðum og námskeiðum fyrir stjórnarmenn í lífeyrissjóðum. Ætla má að Samtök atvinnulífsins gætu gert sambærilegt fyrir sína félagsmenn.

Innviðir og störf

  • Verkalýðshreyfingin fer fram á að tíminn sé nýttur til uppbyggingar innviða sem skapar störf og atvinnu í erfiðri efnahagskreppu og býr í haginn fyrir enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar.
  • Gjaldtaka vegna uppbyggingar innviða á undir engum kringumstæðum að leggjast á almenning.

Allra hagur

Þó svört atvinnustarfsemi sé oftast bendluð við ferðaþjónustuna er rétt að taka fram að flest fyrirtækin í greininni fara eftir lögum og reglum. Það eru hins vegar allt of mörg fyrirtæki sem hafa komist upp með að brjóta gróflega á launafólki og svíkja undan skatti. Þannig komast þau upp með að greiða minna til samfélagsins.

Verkalýðshreyfingin mun fylgja þessum baráttumálum fast eftir, enda allra hagur.

-Björn Snæbjörnsson er formaður Starfsgreinasambands Íslands og formaður Einingar-Iðju.


Athugasemdir

Nýjast