Þorsteinn Sigurbjörnsson strætóbílstjóri á Akureyri lenti í undarlegu atviki á föstudaginn var þegar farþegi í strætisvagn hans þurfti skyndilega á læknisaðstoð að halda. Þorsteinn hringdi í 112 og bað um að fá sjúkrabíl en því var hins vegar hafnað. Var hann sjálfur beðinn um að skutla farþeganum á slysadeild á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
„Ég var á leiðinni niður Höfðahlíðina hér á Akureyri þegar ég var skyndilega beðinn um að stoppa vagninn, en þá var kona aftast í vagninum sem þurfti á læknishjálp að halda. Ég hringdi í Neyðarlínuna eða 112 og sagði að mig vantaði sjúkrabíl. En þá var ég spurður hvort ég gæti ekki bara keyrt henni sjálfur upp á slysadeild," segir Þorsteinn.
Uppfært:
Neyðarlínan vill koma eftirfarandi á framfæri: "Hið rétta er að 22.apríl hringdi maður í 112 og talaði um að hann væri með manneskju hjá sér í bíl sem þyrfti að komast til læknis, NV segir þá að ef hann vanti samband við lækni þá þurfi hann að hringja annað. Þá segist hann vilja sjúkrabíl, og er þá spurður hvort hann geti ekki bara keyrt með manneskjuna á bráðamóttöku, og þá fyrst kemur fram að þetta sé strætisvagn. Að því fengnu spyr Neyðarvörður hvert senda megi sjúkrabílinn, þ.e.a.s. hvar hann geti stoppað til að færa sjúklinginn á milli bíla. Þá segist hann vera á leiðinni að Nætursölunni, og best væri að fá sjúkrabílinn þangað. Þegar svo neyðarvörður spyr hann um heimilisfang Nætursölunnar þá verður hann pirraður og segist bara muni afgreiða málið sjálfur og skellir á."