Stórsigur Víkinga gegn Húnum

Sigurður Sveinn Sigurðsson skoraði fjögur mörk í kvöld fyrir Víkinga. Mynd: Elvar Freyr Pálsson.
Sigurður Sveinn Sigurðsson skoraði fjögur mörk í kvöld fyrir Víkinga. Mynd: Elvar Freyr Pálsson.

SA Víkingar áttu ekki í vandræðum með lið Húna í kvöld er liðin mættust í Skautahöllinni á Akureyri á Íslandsmóti karla í íshokkí. Lokatölur urðu 12-1 fyrir Víkinga. Sigurður Sveinn Sigurðsson skoraði fernu fyrir heimamenn, Rúnar Freyr Rúnarsson þrjú mörk og þeir Orri Blöndal, Lars Foder, Björn Jakobsson, Gunnar Darri Sigurðsson og Sigmundur Sveinsson eitt mark. Mark Húna skoraði Richard Tahtinen

Nýjast