Stofnuðu borðtennisklúbb til að spila meira

Magnús Ingi og Gunnar langaði að spila meira og stofnuðu boðrtennisklúbb. Mynd/Borgarhólsskóli
Magnús Ingi og Gunnar langaði að spila meira og stofnuðu boðrtennisklúbb. Mynd/Borgarhólsskóli

Á heimasíðu Borgarhólsskóla á Húsavík segir frá því að símanotkun ungmenna hafi nokkuð verið til umræðu undanfarin ár. Hún nái inn í skólana og séu mörg ungmenni með síma í leik og starfi rétt eins og fullorðnir.

„Fyrir nokkru var ákveðið að reyna að draga úr símasamskiptum þegar nemendur komu saman í frímínútum. Einn liður í því var að fjölga afþreyingarmöguleikum nemenda í frímínútum og voru sett upp tvö borðtennisborð auk fótboltaspils,“ segir í fréttinni.

Borðtennisáhugi hefur aukist til muna við þetta og samkvæmt skólanum er nú keppst um borðin til að spila. „Í áttunda, níunda og tíunda bekk er 91 nemandi. Það er því ljóst að færri komast að en vilja. Tveir ungir drengir í áttunda bekk, þeir Gunnar Marteinsson og Magnús Ingi Ásgeirsson tóku til sinna ráða og stofnuðu borðtennisklúbb. Hann heitir Borðtennisfálkarnir og hittist einu sinni í viku í Íþróttahöllinni. Þangað geta ungmenni mætt og spilað borðtennis. Þá drengi langaði að spila meira borðtennis og ræddu hugmyndina í félagsmiðstöðinni sinni og úr varð þessi klúbbur.“

Það var mikil aðsókn í upphafi segja þeir félagar á heimasíðu Borgarhólsskóla en í Íþróttahöllinni er aðeins eitt borð til afnota. „Það verður að kaupa fleiri borð, það er svo mikill áhugi“ segja þeir.

Gif


Athugasemdir

Nýjast