Þá voru tilmæli um breytta og bætta starfsemi eða starfshætti Alþingis, en 100 sinnum var minnst á Alþingi í ábendingunum um breytingar á stjórnarskránni. Oftast er lagt til að þingmönnum verði fækkað og að ráðherrar sitji ekki sem þingmenn. Þátttakendur beindu um 900 ábendingum til Alþingis. Oftast var rætt um vinnubrögð þingmanna og þeir hvattir til að vinna meira og betur saman. Einnig voru þingmenn hvattir til að virða niðurstöður Þjóðfundar 2010 og stjórnlagaþings. Ábendingar til fjölmiðla voru 429. Oftast, eða 44 sinnum, er fjölmiðlum bent á að að vera jákvæðari í umfjöllun um menn og málefni og að þeir eigi að fjalla á jákvæðan máta um Þjóðfund 2010 og stjórnlagaþing. Þá er lögð áhersla á að fjölmiðlar séu faglegir og gagnrýnir en slíkar ábendingar voru 35 talsins. Forseti Íslands fékk 12 tólf ábendingar og tíu ábendingum var beint til ráðherra. Ábendingarnar og aðrar niðurstöður fundarins, má nálgast á vefsíðunni www.thjodfundur2010.is.