Stjórn félagsins var leynd upplýsingum

Sigmundur Ernir Rúnarsson fyrrverandi formaður stjórnar Leikfélags Akureyrar segir ljóst að uppsetning á söngleiknum Rocky Horror hafi verið of stór biti fyrir leikfélagið á sínum tíma. “Það hlaust mikill kostnaður af því fresta sýningunni, sem kom til vegna eindreginna óska um að hefja starfsemi Hofs með glæsilegri sýningu af hálfu LA. Þar fyrir utan minnkuðu styrkir til félagsins, sem var fyrirséð en kostnaður jókst á sama tíma, sem ekki var hægt að spá fyrir um,” segir Sigmundur. Þessi ósk hafi komið frá bæði Hofi og Akureyrarbæ.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, sem tók við formennsku í LA af Sigmundi fyrir um ári, skaut föstum skotum að fyrrverandi stjórn félagsins í grein í Vikudegi í síðustu viku. Hún talaði m.a. um að undarlega hljótt hafi verið um ábyrgð fyrri stjórnar félagsins á þeim hremmingum sem nú ganga yfir félagið. Sigrún talaði um að helsta ástæða mikils tapreksturs LA á síðasta leikarári hafi verið sýningin Rocky Horror sem byrjað var að sýna í september 2010.

Sigmundur segir að framlegð af sýningunni fyrir LA í Hofi, hafi verið allt of lítil. “Það kostaði okkur of mikið að setja sýninguna upp í Hofi, miðað við að hafa sett hana upp í Samkomuhúsinu. Það eru margir þættir sem gera það að verkum uppsetningin á verkinu reyndist leikfélaginu allt of kostnaðarsöm. Á hitt ber að líta að samfélagið allt á svæðinu græddi mikið á sýningunni og kannski hefur leikfélagið eitt tapað á henni.”

Sigmundur segir að sínum afskiptum af LA hafi lokið fyrir ári en í ljósi þess sem síðar hafi komið á daginn, megi ljóst vera að jafnvel þegar á þeim tíma var stjórnin leynd lykilupplýsingum um raunverulega rekstrarstöðu félagsins. “Stjórnin var á þeim tíma ekki í aðstöðu, eða hafði forsendur til að rengja þær tölur sem hún fékk á sitt borð en hefði betur vantreyst þeim, fremur en treyst. Í því liggur ábyrgð fyrri stjórnar.”

Sigrún nefndi einnig í grein sinni að ekki hafi verið upplýst um þann kostnað sem hlaust af frestun á sýningu Rocky Horror á aðalfundi í dessember 2010 né að sá kostnaður hafi verið færður í ársreikning félagsins. Þess í stað hafi verið lagður fram ársreikningur sem sýndi góða stöðu félagsins, en að ársreikningurinn hafi ekki verið undirritaður af stjórn eða endurskoðendum félagsins sem sé “fáheyrt” eins og Sigrún orðaði það.

Aðspurður segir Sigmundur að það sé skylda stjórnarmanna og endurskoðenda að undirrita og þar með samþykkja ársreikninga sem lagðir eru fram á aðalfundi. “Við í stjórninni vorum ekki upplýst um að endurskoðendur hefðu gert athugasemdir við ársreikning félagsins.”

Á aðalfundi LA á dögunum kom m.a. fram að fjármunir úr Minningarsjóði Jóns Kristinssonar, um 7 milljónir króna, hefðu verið notaðir í rekstur félagsins án heimildar og vitundar stjórnar. Sigmundur sagði varðandi það mál, að það þyrfti stjórnarsamþykkt til að nýta fjármuni úr sjóðnum. “Í þessu efni sem öðru var málið ekki borið undir stjórn og það er mjög alvarlegt mál. Stjórnin fer ekki með daglega fjármálastjórn félgsins en á að hafa eftirlit með henni. En þegar stjórnin fær ekki réttar upplýsingar á sitt borð á hún erfiðara með hlutina en ella.”

Sigmundur segir að ekki megi gleyma heildarmyndinni. Leikfélagið hafi skapað gríðarlegan virðiskauka á sínu nærsvæði á síðustu árum og hleypt mikilli orku í ferðaþjónustu og menningarlíf. Þeir litlu styrkir sem félagið njóti sérstaklega af hálfu ríkisins, margfaldist í áhrifum í samfélaginu. Berjast þurfi fyrir því að styrkur ríkisins verði aukinn á næstunni.

 

Nýjast